Kata og Melkorka

Dreifbýlisgellurnar

21.09.2008 01:03:26 / Kata

Náladofi í hendurnar við að klappa!

Já ég lenti í því að fá náladofa í hendurnar við að klappa endalaust mikið...í bíó.... já ég var í bíó að klappa, var á MammaMia sing-a-long sýningu og þá er sko klappað, sungið og dansað :D  Vinur minn benti mér nú á að ég hefði verið í bíó en ekki í leikhúsi þegar ég sagði honum frá þessu...hahahahaha....eins og ég hafi ekki vitað það ;) Ég er ljóshærð en ekki ljóska :D

En þetta var rosa gaman, held ég kunni myndina utan af, á mér uppáhalds atriði og alles...og það er þegar þau eru á ströndinni að syngja „Lay all your love on me“ Strákarnir í froskalöppunum er bara flottir :D Sýningin var í stóra salnum í Háskólabíó, þannig að það voru 1000 manns á sýningunni, rosa stuð.

Fór svo aftur í bíó í kvöld...fimmta skiptið á MammaMia...djók... ég er klikkuð en ekki snarklikkuð J Ég fór á Death Race, hún var mjög góð.

Þannig að þessi helgi bara búin að vera mjög fín og afslöppuð....svo elska ég að geta sofið út :D

ZZZzzzz

Góða nótt

..Kata..

p.s HBG er algjört krútt ;)


» 12 hafa sagt sína skoðun

19.09.2008 18:05:00 / Kata

Gamlar bloggfærslur!

Já ég var að skoða gamlar bloggfærslur....og vá hvað það er gaman J og það hvetur mann klárlega til að halda þessu bloggi áfram. Þó mér finnist ég ekkert vera gera mikið af viti þessa dagana, nema jú vinna, tel mig nú alveg vera að gera eitthvað af viti þar, en svo kemur maður heim og veit ekkert hvað maður á að gera af sér.. því sjái þið til...að eitt sinn, snérist allt um að læra, allavega að hafa áhyggjur af því að eiga eftir að læra heima og þess háttar.. ég kvarta nú samt ekkert...það er mjög fínt að fá smá pásu frá skólanum.

Já hvað get ég sagt ykkur... er að fara í bíó í kvöld... að sjá MammaMia... hef heyrt að hún sé þónokkuð góð, eða reyndar veit ég að hún er þónokkuð góð því ég er búin að sjá hana þrisvar sinnum, þetta mun semsagt vera í fjórða skiptið sem ég sé hana og annað skiptið sem ég fer á Sing-a-long sýningu..það er þannig sýning að allir standa upp og syngja með lögunum, það myndast gríðalega mikil stemming á þessum sýningum :D ...OMG...ég er klikkuð... fjórða skiptið... en ok ég hef smá afsökun, það er verið að bjóða mér í kvöld og það var líka boðið mér síðast. :D

Læt þetta duga í bili...er að fara í bíó :D

Kissíkiss

Kata


» 14 hafa sagt sína skoðun

03.08.2008 15:44:25 / Kata

Sálin... mín og þín!

Ein með öllu......rauðu ljósin eru hjartalaga hérna í bænum.....


Tók föstudagskvöldið rólega, fór bara í  bæinn og var svo heima...voða stillt að horfa á DvD með pabba og mömmu.


Á laugardagskvöldið var ákveðið að skella sér í Sjallan á Sálina, svona líka frábær hugmynd nema að mín var ekkert í svo miklu stuði, en eftir nokkra bjóra lagaðist það núna. Var að sötra með Elinu og Sverri, og svo kom Sigrún að sötra með okkur seinna um kvöldið, voða gaman. Svo var haldið í bæinn, reyndum að panta taxa en það var bara margra tíma bið þannig að við redduðum okkur fari, sem betur fer... Elín komst ekki með því henni var svo illt í maganum og Sigrún fór á Kaffi Ak, svo að ég og Sverrir héldum í Sjallan...Vááááááá...Það var svo mikið að fólki, stigin var þétt staðinn, maður komst varla upp en einhvern vegin flaut maður með hópnum og þegar upp var komið var þetta fínt, vissulega mikið af fólki en maður gat andað. Við löbbuðum þarna og um og hittum fullt af furðufuglum, margir voru í svona 80´s búningum, því það var þemað um kvöldið.. ég ákvað að sleppa því, því ég vildi vera í nýja kjólnum mínum :D

Þetta var fínt ball og kom Elín á endanum og við dönsuðum okkur fastar við gólfið, án gríns, þá var gólfið svo klístrað að ég festi skóna mína við gólfið í öðru hverju skrefi..

Sálin stóð sig vel eins og alltaf, málið er bara Sáina að þeir spila alltof mikið af rólegum lögum....

...maður vill hafa manneskjuna sem maður vill dansa með, og mig vantaði hana! Elín ekkert persónulegt, það var mjög gaman að dansa við þig.

Eftir að Sjallinn lokaði þá var farið á Kaffi Ak að hitta hana Sigrúnu mína og við dönsuðum alveg heilan helling...ógó gaman,

Síðan var það bara taxa-röin, Já NEI TAKK, ég tek sko ekki þátt í svona hugsaði mín þegar hún sá taxa röðina sem var km löng! Labba nú frekar heim heldur en að bíða eftir því að fá taxa, en þá reddaði litla syss hún Kamilla mér heim, því hún var að djamma líka.

Þegar heim var komið, var sest með tölvuna og var planið að blogga þessa færslu sem ég er að blogga núna, já Kata alltaf bjartsýn, ég náði að setja myndir inn sem ég tók á síman minn og svo bara sofnaði mín með tölvuna í fanginu...ekki varð mikið úr þessari bloggfærslu þá ;D

Jæja set nokkrar myndir af gellunni í lokinn ;) Þær voru teknar með símanum, þannig að gæðin er ekkert alltof góð.


Me..


Ég og Elín...soldið mikil reykur þarna..


Ég og Sigrún....Lang sætastar.....ég er nottla alltaf eins og fáviti á myndum!


Munið svo að skemmta ykkur fallega síðasta kvöldið um versló ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.08.2008 00:48:35 / Kata

GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ

Vinur minn opnaði undirfataskúffu konu sinnar og tók upp gjafapakka vafinn inní silkipappír: "Þetta er enginn venjulegur pakki."

Hann opnaði pakkann og starði á bæði pappírinn og undirfötin sem í honum voru

"Ég gaf henni þetta þegar við fórum til New York í fyrsta sinn fyrir 8 eða 9 árum síðan. Hún hefur aldrei farið í þetta. Var að spara það fram að sérstakri stund.
Eða . . . ég held hún hafi verið að spara það." Hann færði sig nær rúminu og setti pakkanum hjá hinum fötunum sem hann ætlaði að taka með á jarðarfararstofuna, konan hans var nýlátin. Hann sneri sér að mér og sagði:
"Það á aldrei að geyma eitthvað til þess að nota það á sérstakri stund. Hver dagur er sérstök stund."
Ég held enn að þessi orð hafi breytt lífi mínu.

Núna les ég meira og þríf minna.

Ég sit í garðinum án þess að hafa áhyggjur af neinu.

Ég eyði meiri tíma með fjölskyldunni og minni tíma í vinnunni.
Ég skildi það þarna að lífið á að vera uppspretta reynslu sem maður á að njóta en ekki aðeins að þrauka í gegnum. Ég geymi ekki ekki neitt lengur, ég nota kristalsglös á hverjum degi. Ég fer í nýju fötunum mínum í búðina, ef mig langar til þess.

Ég geymi ekki uppáhalds ilmvatnið mitt fyrir sérstök tækifæri. Ég nota það hvenær sem mig langar til. Orðin "einhverntíman" og "einhvern daginn" eru að hverfa burt úr orðaforða mínum. Ef það er þess virði að sjá, hlusta eða gera, þá vil ég sjá hlusta og gera það núna. Ég veit ekki hvað eiginkona vinar míns hefði gert ef hún hefði vitað að hún yrði ekki með okkur morguninn eftir, það getur enginn vitað. Ég held að hún hefði hóað í fjölskyldu sína og nánustu vini.
Hún gæti jafnvel hafað kallað á gamla vini til að koma sátt á fornar deilur. Ég vil líka gjarnan trúa því að hún hefði farið út að borða á kínverskan veitingastað, sem var hennar uppáhald. Það eru þessir litlu hlutir sem ég myndi sjá eftir að hafa ekki gert, ef ég vissi að minn tími væri kominn.

Ég myndi sjá eftir því að hafa ekki gert þetta vegna þess að ég mun aldrei framar sjá vini mína, og bréf . .. . bréf sem ég ætlaði alltaf að skrifa. . . "einhverntíman."
Ég myndi sjá eftir því og vera sorgmædd vegna þess ég sagði hvorki systkinum mínum né börnum nógu oft hversu mjög mér þætti vænt um þau.
Núna reyni ég hvorki að fresta, tefja eða geyma nokkuð sem gæti fært gleði og hlátur inní líf okkar.
Og á hverjum morgni segi ég við sjálfa mig þetta er minn sérstaki dagur.
Hver dagur, hver stund, hver mínúta er sérstök.


» 8 hafa sagt sína skoðun

31.07.2008 00:22:13 / Kata

Myndir!

Jæja þá hef ég sett inn myndir frá grunnskóla reunioninu, ég semsagt útskrifaðist úr Síðuskóla árið 1998 (shit, 10 ár síðan). Eftir það hef ég náð að útskrifast úr Verkmenntskólanum á Akureyri og Háskólanum í Reykjavík og er núna lífeindafræðingur, bara svona fyrir þá sem ekki vita það.  Núna vinn ég hjá NimbleGen og líkar bara mjög veeeel :D

Ok nóg um það....skoðið myndirnar :D

-Kata- 


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.07.2008 11:22:59 / Kata

Ertu ekki að grínast.... ;)

Melkorka farðu að blogga, þú hefur meiri fréttir en ég ;)
Svo bara nenni ég ekki að blogga :)

» 10 hafa sagt sína skoðun

03.05.2008 23:44:56 / Kata

Daadaddaaaaaa!

Já jólin og allt það..
og páskarnir búnir..
og sumarið að byrja..

Já allt að gerast...
og við erum lifandi ennþá..

Verðum að fara blogga...
Ok...

Sjáumust


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 14:04:23 / Melkorka

Jólin og allt!!

öhömm ansi langt síðan hefur verið bloggað á þessa blessuðu síðu, veit aldrei hvað ég á að skrifa hérna inn!! 8|

En það er nú ýmislegt búið að gerast síðan ég skrifaði síðast....misspennandi þó! :D

Kláraði prófin (öll tvö ) 10. desember og gengu þau bara mjög vel. Þá er ég búin með öll prófin mín í háskóla, eða í bili allavega og svo er "bara" lokaverkefnið eftir.

Er að fara að gera lokaverkefni hjá vinnustaðnum mínum, Nimblegen. Verkefnið heitir Notkun á paraffin pökkuðum DNA sýnum í örflögurannsóknir. Ég er semsagt að fara að rannsaka hvort hægt sé að nota DNA úr paraffin kubbum í örflögurannsóknir. :haha: Ég vinn hluta af verkefninu hjá Krabbameinsfélagi Íslands og hluta hjá Nimblegen. Mjög spennandi...eða það finnst mér allavega.

Ég var að vinna síðustu vaktirnar mínar inn í MAS um helgina og erum við Bylgja byrjaðar í starfsþjálfun inn á labbi. :D Við fáum síðan vonandi aukavaktir þar með lokaverkefninu þegar við eru komnar betur inn í allt ferlið þar. Sem sagt mjög spennandi tímar framundan. Held nú samt að strákarnir inn í MAS eigi nú eftir að sakna okkar svolítið mikið!! hehe :haha:

Jólin voru mjööööööööög fín. Flaug austur 19. desember og mamma og Katrín sóttu mig upp á Egilsstaði. Þegar ég er að labba úr flugvélinni þá er gengið inn í flugstöðina á öðrum stað en venjulega og þegar ég kem inn þá standa þarna c.a. 100 Pólverjar að bíða eftir flugi og ég sé hvergi mömmu eða Katrínu. 8| Ég reyni að labba eitthvað þarna um til að reyna að sjá þær en það var frekar þröngt þarna og ég með 200 Pólverja augu starandi á mig....leið eins og algjörum hálfvita. Ég vissi ekkert hvert ég átti að fara eða hvar töskurnar kæmu, enda aldrei komið í þennan hluta flugstöðvarinnar, þannig að ég settist niður eins og algjör auli og beið eftir að stúlkurnar kæmu. Þær komu á endanum, en þá höfðu þær farið í hinn hluta flugstöðvarinnar og þar var náttúrulega enginn. Eeeeen allavega þá var brunað beint niðrí fjörðinn fagra...eða eftir smá búðarstopp :haha: ... og mikið hrikalega var gott að komast heim í rólegheitin.

En jólin voru allavega svona í grófum dráttum:
22. des --> fór á barinn með Önnu Rósu og Ásdísi Fjólu, að hlusta á einhverja sem ég man ekki alveg hvað heita!! Voða rólegt og fínt kvöld.

23. des --> Frekar næs dagur bara, tekið því rólega og keypt síðustu jólagjafirnar.

24.des --> Borðað alveg hrikalega góðan mat og auðvitað opnað pakka. Kíkt í smá heimsókn til ömmu og afa og svo bara farið heim að lesa og liggja í leti.

25. des --> Tvö jólaboð og síðan spilað við frændsystkynin um kvöldið.

26. des --> Farið á ball á Eskifirði með Á móti Sól. Alveg hrikalega skemmtilegt ball og vorum við stelpurnar ansi hressar. Voru flestir sem sögðu að hljómsveitin hefði verið léleg...en við tókum sko ekkert eftir því!! haha

29. des --> Fór á tónleika í Egilsbúð og síðan að spila með krökkunum.

30. des --> Afmælisdagurinn. Fínn dagur fyrir utan ömurlegt veður. Fékk köku og góðan mat og var eiginlega búin að opna alla afmælispakkana fyrir afmælið!! híhí :lol: Veðrið var það ógeðslega leiðinlegt að rafmagnið fór af öllum bænum í dágóðan tíma. Margeir sagði að veðrið á afmælisdaginn manns segði til um hvernig maður hefði hegðað sér um árið....öhömm ég er nú ekki alveg sammála því!! Er búin að vera ótrúlega stillt og góð!! :haha:

31. des --> Gamlársdagur. Góður matur-brenna-smá áfengi-flugeldar. :D Brennan var fín, reyndar var ógeðslega hvasst, þannig að brennan fauk eiginlega bara. hehe Fór á áramótaball í Egilsbúð með stórhljómsveitinni Dich Milch og var bara þrælskemmtilegt!!


Jámm svona voru nú jólin og áramótin í mjög grófum dráttum.

En núna tekur víst alvaran við af leti og áti!! :| Skólinn byrjaður og lokaverkefnið að fara á fullt.

Er byrjuð í Bootcamp aftur, alveg hrikalega skemmtilegt, en um leið ógeðslega erfitt þar sem ég er ekkert búin að hreyfa mig í mánuð!! 8| Er búin að panta mér tíma hjá lungnasérfræðingi til þess að athuga hvort ég sé með áreynsluastma. Mér líður stundum á æfingum eins og ég sé 85 ára gömul og búin að reykja í 70 ár eða e-ð. Finn það bara að öndunarfærin þrengjast og ég get varla andað og er móð og másandi!! Ekki alveg eðlilegt miðað við að vera 24 ára gömul og aldrei reykt!! :P

Jæja ætli þetta sé ekki komið fínt bara

Bæjó spæjó....

...Melkorka "móða"


» 14 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 21:55:28 / Kata

Partei blogg..

Þetta var bloggað föstudagskvöldið síðasta um klukka 2. En þar sem blog.central.is virkaði ekki og hefur ekki virkað þá hefur ekki verið hægt að birta þessa bloggfærslu :(

 

Góðan daginn/kvöldið

 

Þetta er Allý hérna að skrifa bloggfærslu því Katrín Ósk er of löt til þess.. og Melkorka er ekki hérna akkúrat núna…

Hvað sem Kata segir þá klóraði ég hana ekki til blóðs.. kannski bara pínu.. en það var bara afþví að hún hélt mér niðri og ég var hrædd um líf mitt á þeirri stundu... þannig ég notaði innbyggðu gítarnöglina mína og það var víst óvart of fast... en hún hélt mér líka niðri for kæing át lád...Siggi er komin núna og hann er eitthvað fúll því ég hef ekki addað honum á mæspeis.. en ég veit ekkert hvort hann vill vera mæspeisvinur minn eða ekki því ég fer ekkertað adda honum uppúr þurru.. því hans prófíll er líka á private...(afhverju eru bara ég, Kata og Sóley með myspeis í bekknum?..ha? eru þið einhverjir lúðar eða?...Kata vill koma því fram að hún fór á macdonalds í dag og LÍKA á american style... Og hún á 60% af 50% vodkanum því hún vakaði með börnunum (kata á ekki börn.. hún var bara að passa þau.. siggi segist vera getulaus.. en kata segist ekki vera bún að láta reyna neitt á þetta).Rán og Una eru á trúnó núna... nei ok þær eru að dansa.. 

Við erum í Partý hjá Rán akkúrat núna.. (ok ég á erfitt með fingrasetinguna mina núna þannig gimmí a break hír plís)

OK.. “kærasti/vinur” Ránar er nýfarinn.. við erum of klikkaðar fyrir hann núna.

Viðverulisti

Rán (well duh… hún er full og missir hluti á gólfið með látum og dót)

 

Allý (það er ég …wúhú;)

Kata (loggaði sig inná blogcentral múhahahaa)

Siggi (hann er að vera leiðinlegur við mig núna og ég klóraði hann líka því hann var að pota á lyklaborðið og troða köku í andlitið á mér.. en það er samt betra heldur en þegar Katrín Ósk beit mig í andlitið.. já hún beit mig í andlitið (hún vill segja að hún hafi miklufrekar nartað í andlitið á mér því það er meira sexí eða eitthvað;)

Sóley (heldur uppi heiðri bekkjarins með að vera frábær eins og alltaf)

Una Kristín (er ennþá að tala um einhver börn... og á trúnó með Rán.. og talar um Geir Ólafs.. og sætu stígvélin sín.. endalaust...) 

Siggi heldur að hann sé fyndin.... hann er það ekki.... bara Kata er fyndin.. nema þegar hún heldur mér niðri og lemur mig... þá klóra ég... Fólk er að hugsa um að fara niðrí bæ... nema ég (Allý;) og Sóley... Sóley vill vera góð fyrirmynd fyrir litlu systur sína, og ég er bara þreytt og á að fara í partý aftur á morgun... og er í leiðinlegum skóm... (já afsakanir afsakanir...ég veit.. en ...bara ....fokkjú...)Kata sullaði á sig núna...hún er að drekka brjáluðu bínu.. úr 50% vodkanum...Dagur íslenskrar tungu var í gær og er því núna búinn og þá má tala vitlaust (segir Kata)...(já.. fáið ykkur myspace druslur!! (kata kom með orðið druslur.. ekki ég... ég var að hugsa um að segja tíkur en það er ALLTOF gróft.. já ég veit...sorry... Kata segir að ég verði of ”gróf í kjaftinum” þegar ég drekk... en ég segi að það sé bara helvítis rugl...) Ok.. Rán vill að ég hætti í tölvunni bráðum... eða bara helst áðan... (já rosa lúði ég eitthvað... er í partí og fer í tölvuna... shut up!)

Ps. Rán.. nýju linkarnir í nýja firefox.... sorry... þetta var víst einhver húmor..... sorry... 

» 11 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 09:07:21 / Dreifbýlisgellurnar

Tími svefnsins..

Vá hvað sumir tímar geta verið leiðinlegir, sérstaklega þegar það er verið að kenna okkur eitthvað sem við erum búnar að læra og kennarinn er 10 mín með hverja glæru...og glærurnar eru 30 stk.. kræst...

Við erum að mygla hérna...plz komið nú með brandara handa okkur svo að við myglum ekki alveg ;)

Góða nótt!!


» 11 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 19:07:04 / Melkorka

Shetturinn!!

....já shetturinn!!!!

Held ég hafi aldrei á ævinni hreyft mig svona mikið á einum klukkutíma!! 8|
Fyrsti Bootcamp tíminn var í dag og váááááá hvað þetta var hrikalega erfitt. Um 300 armbeygjur voru gerðar, c.a. 300 magaæfingar, upplyftur, lóðalyftingar og ég veit ekki hvað!!!
...en ótrúlegt en satt þá hlakka ég bara pínu til næstu æfingar!! :haha:

Það verður allavega gaman að sjá árangurinn í lokin...og vonandi verð ég svaka fit og flott um jólin!! hehe 8)

Nú eru aðeins rúmlega 6 vikur eftir af skólanum...shceiss...tíminn er ekkert smá fljótur að líða. Við förum bara í tvö próf núna, erum í tveimur próflausum kúrsum...þannig að þetta verður voða ljúft. Einnig mér til mikillar gleði þá er síðasta prófið 10.desember....jeij...annað en í fyrra þegar við vorum búnar 21. desember (HÍ crap :frown: ) Hugsa að ég vinni í viku eftir síðasta prófið og skelli mér síðan austur í fjörðinn fagra til mams og pabs. :D

Svo styttist líka í við þurfum að byrja á lokaverkefninu okkar, sem er 12 eininga B.Sc. rannsókn...en kannski ég þurfi fyrst að ákveða hvar ég ætla að gera verkefnið.

Ég, Sóley og Kata kepptum fyrir hönd bekkjarins á Ólympíuleikum HR síðasta föstudag. Vorum í liði með Gauja og Alla úr tæknifræðinni. Liðið okkar, sem var nefnt Stelpurnar, haha ;) keppti í bandý og skotbolta. Fyrsti leikurinn okkar í bandý var hræðilegur og töpuðum við 3-1, en í næsta leik tókum við þetta 4-0, en því miður komumst við ekki upp úr okkar riðli og spiluðum því bara tvo leiki!!! Asnalegt!! :$ Í skotboltanum sökkuðum við feitt og töpuðum báðum leikjunum okkar, töpuðum meira að segja fyrir nördunum úr Tvíund (hehe sorry Margeir)!! En þetta var samt alveg hrikalega gaman og harðsperrurnar sem ég fékk daginn eftir og næsta dag voru alveg frábærar!! :haha:

 

Jæja nenni ekki að skrifa meira...ætla að fara að hugsa um harðsperrurnar sem ég fæ pottþétt á morgun!! :S

Bæjó spæjó


» 14 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 16:50:06 / Kata

Klesst á bílinn..

Já....AFTUR....var keyrt á bílinn okkar (síðast var það að vísu Lexinn en núna Galantinn). En já það skiptir ekki öllu máli...við urðum náttúrlega frekar fúl og reið þegar við sáum á mánudagsmorguninn að það var búið að keyra á bílinn okkar og enginn miði eða neitt á bílnum um hver hefði gert það. Það var nefnilega akkurat þannig síðast, við sátum uppi með að borga viðgerð á bílnum fyrir eitthvað sem annar gerði...frekar fúlt.

En svo um hádegi var hringt heim og þá var það löggan að segja okkur að það væri maður hérna úti á plani sem hefi bakkað á bílinn okkar :) Vá hvað ég var glöð :) Held að þetta gerist ekki oft, en þessi strákur var svo heiðarlegur að láta okkur vita :)

Þannig að þessi dagur byrjaði leiðinlega en endaði vel, svo er að þakka þessum heiðarlega manni :)

Kv. Kata ( sem ber mikla virðingu fyrir heiðarlegu fólki ;) )


» 21 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 16:01:30 / Kata

Blessuð og sæl öll ;)

Ég á víst bloggsíðu, maður þarf þá víst að blogga ef maður ætlar ekki að láta hana deyja út...Við erum nú tvær með hana þannig að ég vona að hún deyji ekki alveg strax..

En já annars er skólinn bara byrjaður á fullu :) Erum alltaf að lita vefjasýni og skoða í smásjá og teikna það sem við sjáum í henni. Rosa skemmtó :)

Ég fór norður fyrstu helgina í september til að fara í skírn hjá Patrek Hall, missti vísu af athöfninni sjálfri og komst bara í veisluna, var föst í einhverjum helvítis göngum!! En ég var ekkert smá svekkt að missa af athöfninni því að það var eina ástæðan að ég fór norður.. en svona er þetta bara.. ég fékk þó allavega fullt af kökum :)

En hér er mynd af prinsinum sæta...Vá hvað hann er sætur, og vá hvað ég hlakka til þegar hann stækkar, ég á sko eftir að dekra við hann, ekki það að ég sé ekki byrjuð, það er bara erfitt þegar hann býr á Akureyri og ég í Reykjvík.

Mynd númer 7

Já og svo verð ég að setja eina mynd af Patrek og Rebekku, algjörar dúllur :)

Mynd númer 5

Já og svo verð ég að skella inn einni mynd þegar ég skrapp til Spánar ;) hehehe...

Smá flipp í gangi :)

En jæja er ekki komin tími til að fara læra....eða allavega reyna að byrja að gera eitthvað af viti..

 Kissíkiss

Kv. Kata


» 14 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 19:46:46 / Melkorka

Nú verða sagðar fréttir...

Jæja jæja ætli maður verði ekki að skrifa smá.

Það var alveg geggjað úti í Barcelona, skoðuðum helling, versluðum smá og drukkum bjór (þ.e. aðallega ég, en ekki Margeir) :D Í Leifsstöð áður en við fórum út var auðvitað verslað smá, ég og Ásta þefuðum upp snyrtivörudeildina og misstum okkur smá. Ég verslaði mér augnskugga og sólarpúður og e-ð. Síðan fengum við okkur að borða og auðvitað var fyrsti bjórinn keyptur, sem nota bene var næstum ódýrari en gosið!! Síðan ákváðum við Ásta að skjóast á klósettið áður en vélin færi í loftið. Við förum á klóið og förum síðan að innrituninn og setjumst þar. Eftir u.þ.b. 10 mín. þá fatta ég að ég hafði gleymt pokanum á klósettinu með snyrtivörunum sem ég var nýbúin að kaupa....týpískt ég!! 8| Ég stekk af stað inn á klósett til að athuga hvort pokinn sé enn þar, en nei einhver kellinga beygla hefur ákveðið að taka bévítans pokann!!! þannig að ég var 3000 kr. fátækari og 2 augnskuggum, sólarpúðri, og súkkulaði sem ég ætlaði að borða í vélinni. Vááá ég var ekkert lítið svekkt. En hvað er að fólki að skila ekki svona til öryggisgæslunnar, ég hefði allavega ekki samvisku í það að taka e-ð dót sem aðrir eiga!!
....En sagan er ekki alveg búin...þegar við vorum að bíða eftir töskunum okkar út í Barcelona þá fór ég á klósettið, fer úr jakkanum mínum og hengi hann á snaga inn á klósettinu. Síðan fer ég aftur að færibandinu og bíð eftir töskunni minni. Við erum á leiðinni út þá spyr Margeir mig hvar jakkinn minn sé....þá kviknar á lítilli ljósaperu og bara SHIT ég gleymdi honum á klósettinu. Hleyp eins og vitleysingur...en sem betur fer hékk jakkinn þar ennþá!!! hehe ef þetta er ekki góð byrjun á fríi!! :haha:
...en allvega var alveg geggjað gaman úti, fórum á ströndina að sóla okkur, skoðuðum munkaklaustur, röltum nokkuð mikið um borgina, fórum flott út að borða og margt margt margt fleira.

Eftir komuna heim þá tók bara skólinn og vinnan við, sem er mjög fínt. Held að þessi önn í skólanum eigi eftir að vera mjög skemmtileg. Vinnan er líka mjög fín og ekki slæmt að hún sé þónokkuð vel launuð!! :D
Nú er bara á dagskránni að fara að ákveða blessaða lokaverkefnið!! spennó

Ég ákvað að skrá mig í Bootcamp...en því miður er fullt á þau námskeið sem ég kemst á.  En ég ætla bara að fara á næsta námskeið hjá þeim.  Maður verður nú að koma sér í flott form fyrir Tælandsferðina.....sem er eftir c.a. 8 mánuði!!! jeij jeij vá hvað ég hlakka til!! :haha:

ÆJ nenni ekki að skrifa meira

bæ í bili

» 10 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 00:58:44 / Melkorka

Barcelona here i come!!

Jæja nú skal ég segja ykkur....ég er að fara til Barcelona á morgun............aaaaaaarrrrrrrrrgggggg ég hlakka svo mikið til!!

Við Margeir vorum að koma að austan í dag og planið var að fara á Vestfirðina með Óskari og Ástu.  Strákarnir voru með e-ð leyndarmál í gangi og í kvöld sögðu þeir okkur að stóra leyndarmálið væri það að við værum að fara á Stóra Fiskidaginn á Dalvík....við Ásta alveg hoppuðum af kæti yfir því...eða þannig.  En svo ákváðu þeir að hætta að pína okkur meira og réttu okkur umslög....MEÐ FJÓRUM FLUGMIÐUM TIL BARCELONA!!!! júhú

Shit hvað þetta verður ógeðslega skemmtilegt....versla versla versla og skoða smá!! hehe :haha:
Kem með ferðasögu þegar ég kem heim!

Versló var geggjað skemmtileg, við fórum austur í Neskaupstað á Neistaflug.  Komum seint á föstudagskvöld þannig að það var bara djammað á lau og sun.  Ball með Buff á lau.kvöldið (geggjað gaman) og ball með Todmobile á sun.kvöldið (ekki eins gaman).  Fínt veður alla helgina, sérstaklega á sunnudagskvöldið við brennuna og flugeldasýningin var mjööööög flott!! (takk Skúli pabbi hennar Ástu ;) )


Jæja best að fara að koma sérí bólið.

...Sigrún Edda ég hugsa til þín í mall-unum í Barcelona.  :haha:  Sjáumst "vonandi-kannski" í jeppaferðinni.

» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18
Klukkan
Dagsetning
28. janúar 2012