Já....AFTUR....var keyrt á bílinn okkar (síðast var það að vísu Lexinn en núna Galantinn). En já það skiptir ekki öllu máli...við urðum náttúrlega frekar fúl og reið þegar við sáum á mánudagsmorguninn að það var búið að keyra á bílinn okkar og enginn miði eða neitt á bílnum um hver hefði gert það. Það var nefnilega akkurat þannig síðast, við sátum uppi með að borga viðgerð á bílnum fyrir eitthvað sem annar gerði...frekar fúlt.
En svo um hádegi var hringt heim og þá var það löggan að segja okkur að það væri maður hérna úti á plani sem hefi bakkað á bílinn okkar
Vá hvað ég var glöð
Held að þetta gerist ekki oft, en þessi strákur var svo heiðarlegur að láta okkur vita 
Þannig að þessi dagur byrjaði leiðinlega en endaði vel, svo er að þakka þessum heiðarlega manni 
Kv. Kata ( sem ber mikla virðingu fyrir heiðarlegu fólki
)