Kata og Melkorka

Dreifbýlisgellurnar

27.09.2007 16:01:30 / Kata

Blessuð og sæl öll ;)

Ég á víst bloggsíðu, maður þarf þá víst að blogga ef maður ætlar ekki að láta hana deyja út...Við erum nú tvær með hana þannig að ég vona að hún deyji ekki alveg strax..

En já annars er skólinn bara byrjaður á fullu :) Erum alltaf að lita vefjasýni og skoða í smásjá og teikna það sem við sjáum í henni. Rosa skemmtó :)

Ég fór norður fyrstu helgina í september til að fara í skírn hjá Patrek Hall, missti vísu af athöfninni sjálfri og komst bara í veisluna, var föst í einhverjum helvítis göngum!! En ég var ekkert smá svekkt að missa af athöfninni því að það var eina ástæðan að ég fór norður.. en svona er þetta bara.. ég fékk þó allavega fullt af kökum :)

En hér er mynd af prinsinum sæta...Vá hvað hann er sætur, og vá hvað ég hlakka til þegar hann stækkar, ég á sko eftir að dekra við hann, ekki það að ég sé ekki byrjuð, það er bara erfitt þegar hann býr á Akureyri og ég í Reykjvík.

Mynd númer 7

Já og svo verð ég að setja eina mynd af Patrek og Rebekku, algjörar dúllur :)

Mynd númer 5

Já og svo verð ég að skella inn einni mynd þegar ég skrapp til Spánar ;) hehehe...

Smá flipp í gangi :)

En jæja er ekki komin tími til að fara læra....eða allavega reyna að byrja að gera eitthvað af viti..

 Kissíkiss

Kv. Kata

Una Kristín skrifaði
Er eitthvað vit í að læra????
kamilla skrifaði
flott blogg hjá þér...þau er náttla voða sæt þessi litlu frændsystkyni okkar....enda líka skyl okkur;) hehe
Kata skrifaði
Já er það ekki, Una? Eða maður reynir að telja sér trú um það ;) Já algjörir gullmolar, enda ekki annað hægt þar sem þau eru skyld okkur Kamilla mín :) En hvað segiru hvenær ætlaru að koma að heimsækja mig aftur, Steini var að spyrja hvenær hann þyrfti að kaupa í matinn handa okkur ;) hehe
kamilla skrifaði
hehe rétt rétt:D er að koma i kvöld:) een stoppa svo stutt..heyri í þér
Allý skrifaði
mér finnst mest vit vera sett í þessa "spánarmynd"... ..endilega fá meira af svona flippi Kata mín :)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Dagsetning
20. mars 2010