Kata og Melkorka

Dreifbýlisgellurnar

26.03.2005 21:07:12 / Dreifbýlisgellurnar

Norðurferðin

...ok eftir að hafa setið á flugvellinum frá kl 12:30-18:00 með smá ferð í bæinn með strætó (vallý að fara í fyrsta skipti í strætó í rvk:) ) við vorum sem sagt að reyna að hoppa og það var allt fullbókað :S þannig að við vorum að pæla í að reyna að hoppa á Krókinn og láta systir Vallýar sækja okkur,en þar sem ég var svo lengi að ákveða hvort við ættum að gera þetta þá var það of seint, síðan reyndum við að hringja á allar bílasölur og leigur til að fá bíl til að flytja norður, en það gekk ekki. En um það leyti sem við vorum nýbúnar að missa af flugi á krókinn kemur stelpa inn og var að fara með stelpuna sína í flug á krókinn og hún nottla búin að missa af því líka. og svo eftir miklar hringingar og spjall við þessa stelpu þá ákvað hún að skutla stelpunni sinni norður á móti pabba sínum og bauð okkur far, við þekktum hana ekki neitt, en piff við skelltum okkur með...svo stuttu seinna kom í ljós að hún var hrikalegur bílstjóri..hún keyrði í 3 gír á 130 í 6000 snúningum, greyið bíllinn :S og svo var mamma hennar með og hún var alveg "ýkt pirruð" eins og hún lýsti því. En við komumst lifandi af og systir Vallýar kom í Varmahlíð á bílnum hennar Vallýar og Vallý keyrði rest, guð sé lof :) En þessi ferð var alveg algjör snilld og mjög viðburðarrík:) Við þökkum Huldu sem vinnur í bílanaust í Keflavík alveg æðislega fyrir farið :) Svona var það :) kveð að sinni Kata vinnualki og ekkert djamm fyrr en þegar staffadjammið verður annan í páskum :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.03.2005 22:29:34 / Dreifbýlisgellurnar

Tími til kominn að blogg :)

Úff ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja,það er soldið margt sem mar getur bloggað núna..

En byrjum að segja aðeins meira frá síðustu helgi,gleymdi nokkrum atriðum sem hafa verið að rifjast upp síðustu daga ;)

- Gleymdi að nefna hinn æðislega pylsuvagn sem er rétt hjá Prvada, hann er með kokteilsósu :D vá hvað við akureyringarnir vorum ánægðir núna :) kokteilsósu á pYlsuna okkar :) við vorum svoo hamingjusamar að þið getið ekki trúað því :lol:

- Á Sunnudaginn fékk ég símtal frá einhverju númeri sem ég þekkti ekki...og sagði maðurinn að hann væri að hringja frá rannsóknarlögreglunni og sagði að þeir hefðu fengið nokkrar kvartanir frá íbúum asparfels um hávaða kl 6 um morguninn, að það hefðu verið öskur og læti, ég sagðist að ég hefði verið með smá partý en alls ekki mikil læti og hvað þá öskur (tökum það fram að allt símtalið hugsaði ég,hver í andskotanum er þetta,þetta getur ekki verið rannsóknarlögreglan, en ég er nottla svo kurteis að ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að segja neitt:$) Ég sagði bara að ég kannaðist ekkert við hávaðan og var voða saklaus......og svo sprakk löggan úr hlátri og spurði hvað þekkiru mig ekki :haha: og ég bara ooo ég vissi þetta og grenjaði úr hlátri...Jæja hver haldiði að hafi verið svona sniðugur að hrekkja Kötu greyið sem er alltaf svo stillt og góð :lol:  Hann Margeir, hann er svo fyndinn ;) Svo var þetta ekki nóg því hann eins og þið lásuð fyrir neðan setti sápu í vatnið mitt :klikk: En bíddu bara vinur ;) Þetta er geymt en ekki gleymt.

En jæja það er fleiri sem ég þarf að segja frá en ég þarf að fara sofa,þarf að mæta í vinnu kl átta í fyrramálið 8| En það sem verður næst á dagskrá á blogginu er hvernig við Vallý komumst norður á þriðjudaginn (ég er semst komin norður í "páskafrí") Það er einn stór brandari :) En það verður að bíða til morguns :) ég veit þið bíðið spennt :haha:

En þanga til næst....stay cool ;)

Kata lata

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.03.2005 12:33:49 / Dreifbýlisgellurnar

Nennum ekki að blogga...enda þurfum við að læra

...það er bara stundum þannig að mar nennir ekki að blogga....en hér koma nokkru orð um helgina.

Vallý,Elín,Sigrún og Solla vinkonur Kötu komu í borg óttans í djamm og verslunarferð.
Djamm = Asparfell, Stytta ,Gaukur á Stöng, Pravda, Glaumbar, Dansa, Drekka,                    Bangsímon, Dummerdummer, Siggi, Stelpurnar útum allt,    Pottur,                             Syngja vögguvísu fyrir Melkorku.       
Ís = namminamm
Nammi = það var borðað alltof mikið nammi
Læra undir próf = Lífefnafræði
Sápa = Margeir setti sápu í vatnið hennar Kötu án þess að hún vissi og hún drakk það.. oj...

En jæja semst = Fín helgi, fínt fólk, fínt tuð, fínt blogg

Páskafríið nálgast...

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.03.2005 08:31:19 / Dreifbýlisgellurnar

Andskotinn...

...mar má blóta smá...Við erum mættar í skólan kl átta og þá er frí í fyrsta tíma,það er sosum fínt,þá getur mar hangið á netinu eða farið í super mario en það hefði verið betra að sofa aðeins meira 8|
Ég veit við erum svefnpurkur :)

En annars er mest lítið að frétta af okkur. Við áttum að kryfja kött í gær en tíminn féll niður vegna kattleysi 8| Og svo erum við að fara í próf í næstu viku og svo er það langþráða páskafrí :haha: Namminamm páskaegg ;)

Það er nú ekki meira að segja að sinni...
---Later---

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.03.2005 14:13:14 / Dreifbýlisgellurnar

Við erum á Akureyri :)

Bara láta vita af okkur...Við og Margeir keyrðum til Akureyrar í gær :) Geggjað gaman :)

Hafið það gott um helgina


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2005 10:50:32 / Dreifbýlisgellurnar

Uppfærsla vikunnar...já já við vitum það...slappir bloggarar :)

Jæja ætli við byrjum ekki árshátið Tækniháskóla Íslands sem haldinn var á Broadway þann 3 mars 2005.

 

 



"Kæru kennarar,nemendur og aðrir gestir verið velkominn á SÍÐUSTU árshátíð Tækniháskóla Íslands"

Einhvern vegin svona hófust ræður kvöldsins, já þetta var víst fyrsta og síðasta árshátíð okkar í THÍ, neinei við erum ekkert að falla úr skólanum, það er bara verið að sameina THÍ og HR og mun nýji skólinn heita Háskólinn í Reykjavík, við erum semst að bjarga HR frá gjaldþroti :) hehe En allavega þá verður HR ekki verri að sameinst svona glæsilegum skóla eins THÍ, þá er ég aðallega að tala um nemendur skólans,því við erum náttúrulega ekkert annað en glæsileg,gáfuð og skemmtileg og við kunnum sko að skemmta okkur og það sást greinilega á árshátíðinni, það var sko djammað :) Við fengum mjög góðan mat og skemmtiatriðin voru glæsileg. Eftir matinn var svo ball með Í Svörtum Fötum, þeir eru nátturulega snillingar, Jónsi er algjört æði, er þaggi strákar ;) En ég held það sé óþarfi að fara nánar í öll smáatriði kvöldsins, þetta var glæsileg árshátíð,sem við hefðum aldrei viljað missa af.

 

 



(Btw: Helgi takk fyrir að sýna rassinum á Kötu svona mikla athygli ;) )

 

 



Næst munum við skipta blogginu upp í 2 kafla,því við vorum ekki saman um helgina.

 

 



Helginn hjá Kötu:

Kannski eins og flestir vita þá fór ég norður um helgina, fór með Helga(ekki sem er í THÍ) og Ásgeiri, við brunuðum norður,stoppuðum bara hjá ömmu og fengum pönnsur með sultu og rjóma, namminammi. Síðan var audda skellt sér á djammið með henni Hillu minni,Ásgeiri,Stéfaníu,Helgu og síðan hittum við fullt af fólki sem joinaði okkur. Við byrjuðum á Alí, það var ekkert gaman þar, við hittum Begga þar og auðvitað þurfti Hilla að tala svo mikið að við þurftum að bíða hellinga eftir þeim svo við gætum komið okkur á Amour, og ég meina hann var meira segja að koma með okkur þannig að ég skildi ekki alveg afhverju við gátum ekki bara farið strax á amour,ég veit.. ég er svo þolimóð ;) En svo fórum við á Amour og það var geggjað gaman, hitti Vallý,hún kom alveg brjáluð til mín og skammaði mig fyrir að láta hana ekki vita að ég væri fyrir norðan :) stundum gleymir mar bara, ekkert illa meint elskan. En já og svo var bara dansað og dansað fram á rauða nótt.....eða það minnir mig ;) hehe

 

 



Á laugardeginum fór ég með litlu systir í sund, Kamillu, því að Kolla fór bara á Krókinn að hitta kærastan í staðinn fyrir að vera heima og hitta mig,þvílík móðgun ;) og svo fórum við í bíó á Hitch, hún er geggjað góð, mæli með sjá hana. Það er alltaf svo gaman af fara á grínmynd með Kamillu, ef mar hlær of hátt þá lítur hún á mann eins og mar sé geimvera, æi það er soldið erfitt að vera svona mikil gelgja og skammast sín svo fyrir hvað stóra systir sín hlær hátt :) hehe

Um kvöldið leigði ég svo DVD og átt heilan hellinga af nammi með Huldu.

 

 



Á sunndeginum var svo sofið til svona tvö og farið svo á Sub með Huldu og svo var brunað suður um 17-18 leytið, eða kannski ekki alveg brunað,vorum held ég frekar lengi á leiðinni,enda vorum við ekkert að flýta okkur. Hver er að flýta sér í borg óttans?!?

Heðfi bara átt að vera lengur á Ak því ég er búin að vera veik í 3 daga, ég náði mér í stepthakokkasýkingu(mjög mjög slæm hálsbólga fyrir þá sem ekki vita) á leiðinni suður,hef pottþétt fengið þá á Blönduósi þegar við stoppuðum,það hefur einhver hrækt í matinn minn,ég fékk þá allavega ekki á Akureyri,höfum það á hreinu :) og ég er bara búin að vera dauð í 3 daga,á þriðjudaginn fór ég til doctors og fékk pensilin, sem betur fer,ég gat ekki borðað né sofið, þetta er viðbjóður,ég hef örugglega aldrei borðað jafn mikið af verkjatölfum á ævi minn eins og þá. En þetta er allta að koma, fer vonandi í skólan í fyrramálið, en þetta er samt ömurlegt,ég hef ekki getað sofið fyrir verkjum síðustu nætur, en núna þegar þetta hefur skánað þá ligg ég bara og get ekki sofnað,þannig ég ákvað bara að skrifa smá bloggfærslu, er að skirfa hana í Word þvÍ ég er ekki með netið heima, jamm ég er crazy, en shit klukkan er 03:33 ég verð að reyna sofna ef ég ætla að vakna í skólan í fyrramálið...góða nótt

 

 



Jæja núna fær Melkorka að tjá sig um síðustu helgi

 

 



Helgin hjá Melkorku:

Hmm...vinna...og aftur vinna... Ég að vísu kíkti út á föstudagskvöldið á austfirðingadjamm J það var mjög gaman, edrú og svona. Ég hef nú ekki mikið meira að segja um þessa helgi...over.

 

 


 

 



Þá er yfirlit helgarinn búin. Vikan fór í skólan og veikindi. En vá hvað okkur hlakkar til um helgina,við erum að fara gera soldið skemmtilegt sem engin má vita :)

 

 



Jæja people við erum að fara læra..

Mellukveðjur

Kata og Melkorka


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.03.2005 09:59:01 / Dreifbýlisgellurnar

Barasta bara..

Er aðeins hressari í dag en í gær!
Þetta var ekki nammið :( alveg satt :)
Helgin byrjaði eins hjá mér og Melkorku (lesið bloggfærsluna fyrir neðan þessa) Við fórum í afmæli á föstudagskvöldið,tek undir allt sem Melkorka sagði um matinn,hann var geggjaður.Seinna um kvöldið kom svo Hulda (var að koma í helgarferð í borg óttans) og kom hún með okkur á djammið, það var ógissla gaman,við fórum á Pravda. Við vorum nokkur saman í upphafi en svo enduðu allir útum allt eins og oft vill gerast, en það er bara gaman af því. Ég og Hulda redduðum okkur frítt í taxa :haha: eigum við að fara nánar í það...hmm...við fórum með einhverjum gaurum upp í taxa og síðan var okkur skutlað í Asparfellið og við fórum bara út án þess að borga, sniðugar..hehe crazy people :haha: já við erum ruglaðar.

----Laugardagur = búðir----
Svo vorum við(ég og Hulda)(Melkorka er aldrei róleg :)) bara rólegar um kvöldið og tókum DVD.

Á sunndeginum fórum við í Kolaportið. Svo fór Hulda heim til Akureyrar um hálf 5, mig langaði að fara með henni :(

En jæja best að fara læra,það var nebbla lítið gert af því um helgina!! :P
Over and out
Kata

» 1 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagsetning
18. mars 2010