Kata og Melkorka

Dreifbýlisgellurnar

30.06.2006 15:10:30 / Kata

Hvalaskoðun!

Fór í hvalaskoðun í gærkvöldi á Húsvík með vinnunni á tjaldsvæðinu, við erum að auglýsa eitthvað hvalaskoðunar fyrirtæki á Húsavík þannig að við fengum kynnisferð :) Ok þetta átti að vera 3 tíma ferð, voða spennó sko...við sáum Hrefnu, hnúubak og Steypireyð, fyrir þá sem ekki vita þá eru þeir 35 metrar, það var alveg magnað að sjá hann, tek það fram að báturinn sem við vorum á er 16 metrar. Og það var ekkert smá flott að sjá hann anda, kom svona gosbrunnur úr bakinu á honum, alveg magnað. En ok þetta var fínt og mar hélt að mar væri að fara í land þegar það voru svona 2 tímar búnir en neinei við vorum á sjó í einhverja 4 tíma, ég fór nú bara niður og lagði mig, ég var svo sybbin og það voru fleiri úr hópnum mínu sem gerðu það. Fín ferð en svoldið löng :$ Var komin heim kl tvö..Missti af Boot camp í morgun, steinsvaf bara :whut: Dem...en það er 2 tíma útiæfing á morgun.

En já á mar að athuga hvort mar geti gert eitthvað í vinnunni....

Later..


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 14:36:09 / Melkorka

Blogg fyrir Kötu ;o)

hmmm ekkert rosalega mikið gerst að undanförnu....
Fór að vísu á ættarmót fyrir norðan um síðustu helgi...það var 20 stiga hiti og sól allan tímann...vá hvað ég var farin að sakna sólarinnar...hún hefur varla sést hér í Rvk í allan júní!! :evil: Finnst ég hafa verið svikin...manni er sagt að sumarið komi í júní...en neeei þá rignir bara...:cry: ömurlegt!!
En allavega ótrúlega gaman að hitta alla ættingjana...þekki þá nánast ekkert..en það var mikið drukkið og sungið...greyið Margeir var píndur til að spila á gítar fyrir liðið!! hehe :haha:
Núna sit ég bara heima lasin (kemur á óvart) og læt mér leiðast!! Ekki alveg að nenna þessu lasarus dæmi...en þetta fylgir víst rigningunni og kuldanum!! :evil:

Váá hvað þetta er e-ð jákvætt blogg hjá mér!! haha 8)

Æj nenni ekki að skrifa meira...ætla að fara að láta mig dreyma um utanlandsferð í ágúst....sól-bjór-föt!! :haha:

p.s. stelpur vitiði nokkuð hvenær stundartaflan á að koma inn??

» 6 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 12:18:18 / Kata

Djammedídjamm

Þetta er búið að vera fín helgi, ég og Inga fengum smá kaupæði á laugardaginn, ég keypti mér jakka, bol og skó :) Svo fór ég á djammið um kvöldið og var algjör gella í nýju fötunum, er samt auðvitað alltaf gella ;)

Ég skemmti mér bara ágætlega á djamminu, fékk samt ekki að sjá Kungfu spila því að þegar við mættum á Rocco þá var enginn þar nema starfsfólkið :$ Ég var geðveikt svekkt. Við fórum þá bara á kaffi Ak og svo á Amour og svo á Kaffi Ak og svo á Amour og svo aftur Kaffi Ak...mig minnir allavega að þetta hafi verið svona.  En hvað um það þá var mjög gaman, ég dróg Almar útum allt á Amour, hann var eitthvað tregur við að koma að dansa þannig að ég dróg hann bara á dansgólfið :D Svo var Þórunn vinkona með myndavélina á Kaffi Ak þannig að það voru teknar nokkrar myndir af gellunni, held þær hafi verið bara 3 og enginn af mér í símanum :) En ég tók líka um 40 myndir, sem ég þarf að fara setja á netið, ég er bara ekki alveg búin að koma myndasíðunni í gang. hmm..þetta kemur einhvern tíman í framtíðinni.

Ég hélt að hendurnar á mér myndu detta af í boot camp í morgun, shit hvað þetta var erfitt, gerði fleiri en 350 armbeygjur í tímanum og svo einhverjar handaæfingar og fullt fullt af magaæfingum :) ...það er bara verið að reyna að drepa mann. Samt gaman af þessu :)

Jæja best að fara vinna

Mússímús og kissíkiss

Kata


» 9 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 11:35:18 / Kata

Já einmitt

Hef lítið að segja, það er bara ekkert að gera í vinnunni þannig að ég ákvað að blogga smá. Finnst eigilega komið að Melkorku að tjá sig hérna.

Einmitt...stelpan sem ég er að vinna með stendur hérna við hliðina á mér og er að dansa eins og einhver asni ;) thíhí

Svo skokkaði ég upp gilið í morgun, ekkert mál sko, dó bara næstum því :)

Ég fékk rós í gær frá Sigga sæta :)

Sko hef ekki frá miklu að segja, en hvað segi þið folkes á að djamma um helgina?


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 08:20:02 / Kata

Boot Camp

...Hvernig datt mér þetta í hug, ég hélt ég myndi deyja þetta var svo erfitt, samt gaman. Þegar það voru 10 mín búnar þá hugsaði ég, shit hvað er ég að hugsa. En núna er ekki aftur snúið, mæting kl 6:10 mán, miðv og föstudaga og annan hvern laugardag í 6 vikur. Úff. En mar kemst í gott form, það er pottþétt.

Jæja ég get ekki pikkað inn meira, hendurnar á mér skjálfa svo mikið.

Kissíkiss

Kata

Btw það er kvennréttindadagurinn í dag, mér sagt að þakka langömmu minni fyrir að mega kjósa og svo var fest á mig bleik slaufa :) En já stelpur þakki þið langömmum ykkar fyrir að við megum kjósa :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 11:30:23 / Kata

Söknuðarveiki enn og aftur

Þetta er alveg hræðileg veiki, mun þjást af henni næstu 32 daga :cry:  En þið þurfið ekki að hafa áhyggjur hún er ekki smitandi.

Núna er ég bara í vinnunni, er að vinna á rannsóknardeild FSA fyrir þá sem ekki vita það, það er mjög gaman. Svo verð ég einnig að vinna á tjaldsvæðinnu á kvöldin og um helgar.

Mig langar að óska litlu systrum mínum til hamingju með 17 ára afmælið, þær eru víst ekki á landinu, þær er í Danmörku þannig að þið þurfið ekki að hafa áhyggjur að þær sé einhver staðar þarna í umferðinni strax ;) Ætli ég þurfi nokkuð að gefa þeim afmælisgjöf víst þær eru ekki á landinu?? ;) en ætli ég sleppi nokkuð svo auðveldlega, verð örugglega rukkuð um afmælisgjöf um leið og þær koma heim :haha: hehe

Til hamingju elsku dúllurnar mínar.

jæja ætla bara að hafa þetta stutt núna, verð að fara vinna.

kissíkiss

Kata


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 11:26:52 / Melkorka

smá blogg

Jæja er ekki kominn tími til að blogga smá!!!  Er í vinnunni og það er nú mjög rólegt núna...þannig að ég hangi bara í tölvunni!!! :D
Hefur svosum ekki mikið gerst frá því að skólanum lauk...hef bara legið í leti með tærnar upp í loft!!  Eða hef mætt í vinnuna, ræktina og svo farið heim og legið í leti!! :haha:
Nýjustu fréttir...við Margeir keyptum okkur grill um daginn...hrikalega flott...og það hefur verið grillað nánast alla daga síðan!! hehe  Hlynur Ben var búinn að skora á okkur að bjóða honum í grill og auðvitað var staðið við það!!
En jæja ætlaði bara að hafa þetta stutt....vona nú að sólin fari að sýna sig hér í borginni...þetta er sko ekki sniðugt!! :evil:

kv. Melkorka "snjóhvíta"

» 7 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagsetning
22. mars 2010