Hmm ég bloggaði síðast 24 júlí....já það telst nú vera ágætt, er
þaggi annars.
En ég bara búin að hafa það fínt síðan þá, búin að fara til útlanda
og svona. Ég og Siggi skruppum til Búlgaríu á Sunny Beach, það var
alveg frábært, það var frábært veður allan tíman. Við vorum á
hóteli þar sem allt var innifalið,áfengi líka

En það sem við
gerðum svona í stórum dráttum þá lágum í sólbaði, röltuðum í búðir,
köfuðum, létum spítbát draga okkur í svona fallhlíf, það var æði,
djömmuðum, skemmtanalífið þarna er frábært og staðirnir eru
magnaðir, einn var á 4 hæðum og annar var með sundlaug og var
risastór. Þetta var alveg æði, gott að komast frá öllu og þurfa
ekki að hafa áhyggjur af neinu. Alltaf gott að fá smá svona
frí.
Annars er bara skólinn byrjaður = Kata verður dugleg að blogga
En er þetta ekki að verð gott blogg núna, má nú ekki hafa þetta of
langt. Kanski að bæta því við að ég búin að vera veik í tæplega
viku, við nældum okkur víst í einhvern niðurgang síðasta daginn sem
við vorum úti. Alveg æðislegt, við erum búinn að vera slást um
klósettið í viku, en núna er Siggi orðinn góður en ekki ég.
Ömurlegt, algjört svindl....en kanski er þetta eitthvað sem maður á
ekki að blogga um, bara halda þessu fyrir sig, en það er of seint.
En ég fer nú vonandi að lagast, nenni ekki að fara til læknis.
En jæja krúttin mín...ég er sem sagt á lífi...reyna að láta heyra
oftar í mér.
Kissíkiss
Kata