....já shetturinn!!!!
Held ég hafi aldrei á ævinni hreyft mig svona mikið á einum klukkutíma!! 
Fyrsti Bootcamp tíminn var í dag og váááááá hvað þetta var hrikalega erfitt. Um 300 armbeygjur voru gerðar, c.a. 300 magaæfingar, upplyftur, lóðalyftingar og ég veit ekki hvað!!!
...en ótrúlegt en satt þá hlakka ég bara pínu til næstu æfingar!! 
Það verður allavega gaman að sjá árangurinn í lokin...og vonandi verð ég svaka fit og flott um jólin!! hehe
Nú eru aðeins rúmlega 6 vikur eftir af skólanum...shceiss...tíminn er ekkert smá fljótur að líða. Við förum bara í tvö próf núna, erum í tveimur próflausum kúrsum...þannig að þetta verður voða ljúft. Einnig mér til mikillar gleði þá er síðasta prófið 10.desember....jeij...annað en í fyrra þegar við vorum búnar 21. desember (HÍ crap
) Hugsa að ég vinni í viku eftir síðasta prófið og skelli mér síðan austur í fjörðinn fagra til mams og pabs.
Svo styttist líka í við þurfum að byrja á lokaverkefninu okkar, sem er 12 eininga B.Sc. rannsókn...en kannski ég þurfi fyrst að ákveða hvar ég ætla að gera verkefnið.
Ég, Sóley og Kata kepptum fyrir hönd bekkjarins á Ólympíuleikum HR síðasta föstudag. Vorum í liði með Gauja og Alla úr tæknifræðinni. Liðið okkar, sem var nefnt Stelpurnar, haha
keppti í bandý og skotbolta. Fyrsti leikurinn okkar í bandý var hræðilegur og töpuðum við 3-1, en í næsta leik tókum við þetta 4-0, en því miður komumst við ekki upp úr okkar riðli og spiluðum því bara tvo leiki!!! Asnalegt!!
Í skotboltanum sökkuðum við feitt og töpuðum báðum leikjunum okkar, töpuðum meira að segja fyrir nördunum úr Tvíund (hehe sorry Margeir)!! En þetta var samt alveg hrikalega gaman og harðsperrurnar sem ég fékk daginn eftir og næsta dag voru alveg frábærar!! 
Jæja nenni ekki að skrifa meira...ætla að fara að hugsa um harðsperrurnar sem ég fæ pottþétt á morgun!! 
Bæjó spæjó