Kata og Melkorka

Dreifbýlisgellurnar

30.04.2007 18:34:03 / Melkorka

Andleysi....

úff púff þessi tími ársins er sko engan veginn í uppáhaldi. Er bara ekki að halda einbeitningu við að læra...veit ekki hvort það sé vegna leti, vegna orkuleysis út af helv. veikindum, eða einfaldlega vegna þess að þetta efni er bara illskiljanlegt!!! :cry:
Hversu oft er maður búin að læra um bévítans polymerasana, tRNA, mRNA og rRNA, uppbygging kjarnaflóka blebleble umritun, þýðing, genatjáning...en alltaf þarf maður að fara yfir þetta aftur!! Þetta eru svo mörg smáatriði sem maður þarf að kunna.......ooo ég er alveg að fara yfir um!! :^)
Í rauninni ætti maður að vera glaður, þar sem sólin er nú aðeins farin að skína hér í borginni....en við skólanördarnir þurfum að húka inni og læra!! Ég gæti sko alveg haldið áfram að væla í allan dag...en ég ætla ekki að gera ykkur það kæru lesendur. :haha:

En fyrir utan allt læradómsdrasl er bara fínt að frétta. Ég er að fara á fermingarbarnamót um Sjómannadagshelgina (1. helgin í júní)....og vááá hvað ég hlakka til!! Ég og Anna Rósa erum búnar að vera að snúast og redda peysum og derum fyrir allt liðið...og verðum við sennilega flottasti fermingarárgangurinn sem uppi hefur verið!! hehe 8)

En allavega við erum að fá um og yfir 100 heimsóknir á dag....en engir kvittar fyrir sig:!::!::!:
Hvernig væri ef allir sem heimsækja síðuna myndu kvitta...bara til að segja hæ...eða t.d. peppa okkur upp í próflestrinum!! ;)

Kv. Melkorka "skólanörd"

» 11 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 00:59:29 / Kata

Bloggað dagleg...rosa dugleg

Farið á morgun....my ass..:frown:

Ég svo miklu verri í gær en í dag, mér hefnist fyrir að vera bjartsýn.  Hálsbólgan,kvefið, horið og hausverkurinn er enn að hrjá mig og þar að auki er ég líka með beinverki og svima. Ekkert sem verkjatafla lagar ekki...þar að segja beinverkina, gerir ekki mikið gagn á sviman.

En mín ætlaði sko að mæta í skólan í morgun, ég svaf samt yfir mig, vaknaði ekki fyrr en klukkan tíu, þannig ég reif mig á fætur og fór að klæða mig en þá bara kom þessi yndislegi hausverkur og svimi að ég lagðist bara aftur. Frekar fúl, því að það voru nemendafyrirlestrar í dag og mig langaði að fylgjast með þeim. 8|  Á morgun þarf ég sem sagt að flytja minn fyrirlestur, ég ætla að vona að hálsinn verði betri því ég var nánast raddlaus í morgun.

En það verður mætt á morgun sama hvernig ég verð, og markmiðið mitt verður að smita sem flesta í bekknum ;) hehe

En jæja best að fara koma sér í rúmið og taka snýtipappírinn með, því ef þetta verður eins og síðast nótt þá vakna ég til að snýta mér 10 sinnum.

Vælvæl...I know

Það má stundum..er það ekki!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 15:10:56 / Kata

Hæhæ

Jæja núna er réttur tími til að blogga, prófin að fara byrja eftir 8 daga, förum reyndar í verklegt próf á föstudaginn. Alltaf gott að geta bloggað þegar maður nennir ekki að læra.

 

Kvef, hálsbólga og hósti hrjáir mig þessa dagana og auðvitað söknuðarveiki. Ég vil nýta tækifærið og þakka Steina fyrir kvefið og hálsbólguna, Una fær líka þakkir fyrir að eiga þátt í smita Steina, þannig að raun á ég að þakka Unu fyrir þetta allt saman, þar sem hún byrjaði ;) Reyndar er þetta allt saman mér að kenna þar sem það neyddi mig engin til að heimsækja þau, en piff, ég er svo hraust að þetta verður farið á morgun :D

Og já það er Sigga að þakka að ég þjáist af söknuðarveiki..

Ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að skirfa hérna þar sem ég geri ekkert annað en að læra og hanga eitthvað, maður er svoldið duglegur að finna sér eitthvað annað að gera en að læra þegar maður þarf að vera læra, til dæmis þrífa, blogga, trufla fólk á msn sem er að reyna að læra, sofa og bara hanga.

Jú svo kom familian suður um helgina, og ég var svo góð að lána mömmu og pabba rúmið mitt, og ég systur mínar tvær sváfum í stofunni, sem var bara mjög cozy.  Við fórum í búðarráp á sumardaginn fyrsta og föstudaginn og svo sendi ég þau ein í búðarráp á laugardaginn svo ég gæti lært. ég fór aðallega með þeim á fimmtudaginn og föstudaginn til að sýna þeim hvernig maður ætti að rata svona á helstu staðinn, kringluna og smáralind aðallega og svo auðvitað aftur heim til mín, þar sem þau rata ekki neitt hérna, en ég tók eftir því að þeim fannst bara voða gott að láta mig rata ;)  En það var alveg yndislegt að hafa þau.

Ég verð fyrir norðan í sumar, að vinna á rannsóknardeild FSA. Ætla einnig að reyna að fá auka vinnu á tjaldsvæðinu.

Jæja ætla bara að hafa þetta stutt í dag!

Ætla að fara að læra :D

Kv. Kata lata


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 13:19:46 / Melkorka

Heppni...hvað er það??

Jæja langt síðan maður hefur dritað niður orðum á þessa blessuðu síðu.
Hafði það alveg rosalega gott í páskafríinu...búin að borða -sofa-vinna-borða-sofa!! voða næs. Mamma og pabbi voru í borginni í nokkra daga áður en þau flúðu til Kanarí í sól og hita í 2 vikur...váá hvað ég væri til í að liggja á heitri strönd núna!! :$ Katrín syss var hjá okkur yfir páskana og fórum við ekki ófáar ferðir í búðarráp...Margeir auðvitað himinlifandi yfir því, vegna þess að ég er nú ekki þekkt fyrir að kaupa mér föt!! haha :haha: En það var örlítið verslað!! Katrín kom með Singstar með sér...en við tókum nú bara eitt kvöld í að syngja fyrir Margeir....held að hann hafi nú verið feginn...sagði við mig að ég ætti nú kannski ekkert að leggja sönginn fyrir mig...haaa hvað meinar hann, ég syng alveg eins og engill!! híhí :P

En að allt öðru...ég er komin með tvær vinnur...hjá Rannsóknastofunni í Meinafræði (Vefjarannsókn) í sumar og síðan aukavinna (kvöld og helgar) hjá NimbleGen...ekki slæmt það!! 8) Var að vinna nokkra daga um páskana hjá NimbleGen svona til að komast inn í þetta allt saman....og er ég að byrja á fyrstu vaktinni núna um helgina..lau. og sun. frá 18-24!!

Lenti í mjög svo skemmtilegu slysi í gærkvöldi.....var að þrífa flísarnar inná baði með fúguhreinsi, sem er semsagt örlítið sterk sýra...og haldiði ekki að fröken heppin hafi ekki bara skvett í augað á sér...jebb just my luck!! Við Margeir beint niður á slysó, þar sem ég lá í saltvatnsaugnskoli í tæplegan klukkutíma!! 8| Strákurinn sem tók á móti okkur á slysó var mjög svo hýr og þá meina ég bókstaflega. Hehe hann spurði um kennitöluna mína og ég sagði hana kannski ekki nógu hátt, því allavega þá sagði hann já 1923....rosalega líturu nú vel út miðað við aldur!!! hahaha :D Eftir augnskolið þá skoðaði læknir mig og hann sá víst örlítið sár eftir þetta allt saman...þannig að núna er ég eins og hringjarinn í Notre Dame. Er svolítið bólgin og þarf að bera e-ð krem í augað í 3 daga og sé ég allt í móðu með öðru auganu...en þetta lagast nú vonandi!! :)

Jæja ætla að fara að reyna að læra e-ð í hausinn minn núna...bryðja nokkrar verkjatöflur þá ætti ég að vera fín!!

Kv. ungfrú heppin

» 8 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 23:06:11 / Kata

Ný bloggfærsla...

...er í vinnslu í hausnum á mér..

 


» 2 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010