Katrín Ósk Guðmundsdóttir a.k.a. Kata a.k.a. SmessaHún er Akureyrarmær í húð og hár og ber það SKO vel með sér!! Hún "prumpar" hrikalega í "stampinn" (sagt með norðlenskum hreim) híhí ;o)
Hún er fædd 18. maí árið 1982 og er því 24 ára
Hún er pínu klikk og hún á BARA röndótta sokka....ég meina hver gengur í hvítum sokkum!!!
)
Já og ekki má gleyma því að hún ELSKAR símann sinn.....í bókstaflegri merkingu!!! Hún skrifar sms frá því hún vaknar á morgnanna og þangað til hún sofnar á kvöldin (hún skrifar örugglega sofandi líka), enda er hún ekki kölluð smessa fyrir ekki neitt!!!
) hahahahhaha
Melkorka Elmarsdóttir a.k.a. Melkorka
Hún er austfirðingur í húð og hár og kemur frá þeim snilldarbæ Neskaupstað, öðru nafni Norðfirði!!
Hún er fædd 30. des árið 1983 og verður því 23 á árinu.
Hún er sko ekki bara pínu klikkuð...Hún borðar ekki grænmeti..hún segist ekki borða GRAS. Og það er reyndar margt sem hún borðar ekki,hún er algjör gikkur
)
Hún elskar BJÓR 
Og passið ykkur í umferðinni hún er SVÍN...samt frekar sætt svín!! ;o)
Við erum semsagt báðar á 3.ári í Lífeindafræði við Háskólann í Reykjavík + einn kúrs við Háskóla Íslands (sem betur fer bara einn). og ef allt gengur vel hjá okkur þá eigum við að útskrifast með B.Sc. gráðu vorið 2008...vóóó hvað það styttist!!
)
Hérna koma síðan mjög svo spaugilegar myndir af okkur gellunum!!
)



